Fréttir

Körfubolti | 21. nóvember 2003

Njarðvík vann Grindavík í skemmtilegum spennuleik

Það fór eins og við höfðum spáð fyrir um, leikur Njarðvíkur og Grindavíkur var hörkuskemmtilegur og spennandi og meira að segja framlengdur. Njarðvík var yfir mest allan leikinn og þeir virkuðu sterkari, en Helgi Jónas og Páll Axel skutu Grindavík aftur inní leikinn og knúðu fram framlengingu. Það dugði ekki til og Njarðvík vann með einu stigi, 87-86.

Stóru strákarnir hjá Njarðvík, Páll (19 st. / 7 fr.), Friðrik (14/8) og Egill áttu allir topp leik. Liðið veiktist undir lokin þegar Páli var skipt út af, en hann kom aftur inn og gerði nánast út um leikinn. Egill átti flottan leik, skoraði 8, hirti 8 og varði 9. Drengurinn er gríðarlegt efni, líklegast það mesta á landinu í dag. Brenton (13) og Brandon (17) hafa oft verið iðnari við stigaskorun, en Brenton átti þó næstum þrefalda tvennu með 13 stig, 9 fráköst og 9 stoðsendingar.

Grindvíkingar voru allan tíman að elta og virtust aldrei komast á flug. Þeir léku full hægt og gáfu Njarðvíkingum færi á að stilla upp vörn sinni sem er gríðarsterk þegar hún er búin að koma sér fyrir. Darryl átti góðan leik með 25 stig og 15 fráköst, en hefur oft nýtt færin sín betur. Reyndar var hittni beggja liða ekki góð, sér í lagi utan 3ja stiga línunnar, Njarðvík setti 3 af 17 og Grindavík 5 af 30, samtals 8 af 47 sem er slakt.

En Njarðvíkingar voru heilt yfir sterkara liðið og verður gaman að takast á við turnana þrjá í úrslitaleiknum á morgun.