Fréttir

Körfubolti | 9. janúar 2005

Nokkrar myndir úr leikjum Keflavíkur og Njarðvíkur

Keflavík og Njarðvík hafa mæst 4 sinnum í Bikarúrslitum, fyrst árið 1990 en þá hafði Njarðvík betur 90-84.  Næst mættust þau svo árið 1994 en þá vann Keflavík 100-97 ( Foster með stórleik).  Árið 1999 fór svo fram einn mest spennandi úrlsitaleikur sögunar þar sem Njarðvík vann 102-96, eftir að hafa náð með ótrúlegum hætti að knýja fram framlengingu 88-88.  Síðasta ár þarf svo varla að minna neinn á enda öllum Keflvíkingum en í fesku minni, en þann leik unnu við nokkuð örugglega 93-74.
Nú er bara að mæta tímalega í sláturhúsið og sjá alvöru bikarveislu, fyrst Keflavík- ÍS kl 18.15 og svo strax á eftir Keflavík-Njarðvík. Þess má geta að trommusveitin verður að sjálfsögðu á báðu leikjum til að tryggja hámarksstemmingu.

Hér eru nokkrar myndir úr deildarleiknum í desember.