Nokkurð orð um árásina á Fannar
Vegna árásarinnar á Fannar vill stjórn körfuknattleiksdeildarinnar að það komi skýrt fram að á engan hátt má tengja árásarmanninn við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Stjórnin hvetur stuðningsmenn Keflavíkur til að hafa það hugfast. Á milli félaganna hefur um langt skeið ríkt heilbrigður rígur sem hvatt hefur menn til dáða, en þetta atvik er á engan hátt partur af þeim ríg. Þetta atvik hefur ekkert að gera með Keflavík og Njarðvík, heldur er um að ræða einstakt og einangrað atvik ógæfumanns sem á ekkert skylt við okkar göfugu íþrótt og tengist ekki langvarandi keppni milli okkar félaga. Árásin er hins vegar grafalvarlegt mál, ógæfumaðurinn verður kærður fyrir sína árás og mun réttarkerfið sjá um framhaldið. Samstarf Keflavíkur og Njarðvíkur hefur verið verulega gott í gegnum tíðina og góður andi er ríkjandi meðal leikmanna, stjórnarmanna og stuðningsmanna beggja félaga. Stjórnin vill biðja Keflvíkinga og Njarðvíkinga að tengja þetta mál ekki körfuboltanum í Reykjanesbæ og ekki láta það varpa skugga á samstarf félaganna. Frekar eiga menn standa heilshugar með Fannari í hans erfiðleikum og styðja svo áfram sín félög í þeirri baráttu sem framundan er - á heilbrigðan hátt, líkt og gert hefur verið hingað til.
Stjórn KKDK