Fréttir

Körfubolti | 22. september 2004

Nordic Challence - Norðurlandamót félagsliða hefst í Osló á fimmtudag, Keflvíkingar héldu af landi brott í morgun

Í fyrsta skiptið verður haldið Norðurlandamót félagsliða, en slíkt hefur lengi verið á dagskránni hjá körfuknattleiksforystunni á Norðurlöndum. Mótið kallast Nordic Challence eða Nordisk Klubb Mesterskap og verður leikið í Rykkinnhallen í Oslo frá 23. til 26. sept. Keflavík var boðið á mótið fyrir hönd Íslands og að sama skapi mæta til leiks meistarar Noregs, Bærum Verk Jets (heimamenn) og meistarar Finlands, Kouvot. Norrköping Dolphins leika fyrir hönd Svíþjóðar, en þeir urðu í öðru sæti sænsku deildarinnar í fyrra. Dönsku meistararnir, Bakken Bears (mótherjar Keflvíkinga í Evrópukeppninni í haust) boðuðu forföll sökum þess að þeir halda eigið mót um helgina.

Fyrsti leikur Keflvíkinga er gegn heimamönnum og verður hann sýndur beint í sjónvarpinu í Noregi. Hægt er að fylgjast með framgangi mála og stöðu leikja á heimasíðu mótsins.

Keflavíkurpiltar héldu til Noregs í morgun og munum við reyna að flytja fréttir af þeim eins og best verður kosið.

Leikjaniðurröðun er sem hér segir (á norsku):

Torsdag 23. september
18:30 Bærums Verk Jets vs. Keflavik
20:30 Kouvot vs. Norrköping Dolphins

Fredag  24. september
18:30 Keflavik vs. Kouvot
20:30 Bærums Verk Jets vs. Norrköping Dolphins

Lørdag  25. september
15:00 Norrköping Dolphins vs. Keflavik
20:00 Bærums Verk Jets vs.Kouvot

Søndag 26. september
15:00 #3 vs. #4
17:00 #1 vs. #2