Nú byrjar veislan! Tindastóll kemur í Sláturhúsið í kvöld en líklega hefur úrslitakeppnin aldrei verið jafn sterk!
Með tilkomu margra góðra erlendra leikmanna hafa liðin tvímælalaust styrkst. Þess vegna er ómögulegt að tilgreina hvaða lið eru sigurstranglegust, ekki síst vegna þess að Njarðvík og Grindavík hafa bætt við hóp sinn nýlega og ekki er komin reynsla á nýskipuð lið þeirra. En öll 8 liðin sem keppa í fyrstu umferðinni eru sterk og öll geta landað sigrum gegn hverju hinna. Ekki þarf nokkurn að undra þó að amk. eitt af “neðri” liðunum nái að leggja eitt þeirra “efri”. Öll ætla liðin áfram, svo mikið er víst.
Okkar andstæðingar af Sauðárkróki hafa átt marga góða leiki í vetur og skemmst er þess að minnast að þeir unnu okkur með yfirburðum fyrir stuttu í Síkinu á Króknum. Kristinn Friðriksson er þjálfari liðsins og mikill reynslubolti í úrslitakeppni. Stólarnir hafa líka átt það til að standa sig vel í úrslitakeppninni á undanförnum árum, t.d. komust þeir í úrslit gegn Njarðvík árið 2001 og einnig áttu þeir góða leiki gegn Grindavík í fyrra í undanúrslitum og töpuðu í oddaleik.
Ef við berum liðin saman í KKÍ keppnum kemur eftirfarandi í ljós:
- Meistarakeppnin: Keflavík 1 sigur og ekkert tap, Tindastóll tók ekki þátt
- Deildarkeppnin: Keflavík 15 sigrar og 7 töp, Tindastóll 12 sigrar og 10 töp
- Bikarkeppnin: Keflavík 5 sigrar og 0 töp, Tindastóll 2 sigrar og 1 tap
- Hópbílakeppnin: Keflavík 5 sigrar og 1 tap, Tindastóll 3 sigrar og 2 töp
- Samtals:
- Keflavík 34 leikir, 26 sigrar, 8 töp (76% vinningshlutfall)
- Tindastóll 30 leikir, 17 sigrar, 13 töp (57% vinningshlutfall)
Lið þeirra byggir mikið á Könunum þremur, þeim Clifton Cook, Nick Boyd og David Sanders. Þetta þríeyki skorar um 60 stig af rúmum 90 að meðaltali, eða um 2 af hverjum 3 stigum. Þeir eru einnig prýðilegar skyttur, allir og við bætast fleiri slíkar í liðinu. Skemmst er að minnast þess að þeir voru sjóðheitir í þristum í síðasta leik gegn okkur. Aðrir lykilleikmenn eru þeir Axel Kárason, Helgi Viggósson og Svavar Birgisson, en hann hélt aftur heim á leið eftir dvöl hjá Hamri. Svavar er mikill skorari og getur gert mikinn usla. Við Keflvíkingar vitum náttúrulega vel hvað Kiddi Gun getur, en hann hefur þó ekki náð að beita sér af fullum krafti sökum meiðsla og er þátttaka hans nokkurt spurningamerki.
Sjá yfirlit yfir leikmenn Tindastóls í deildarkeppninni
Það er nokkuð ljóst að við hörkulið er að eiga og verðum við að ná upp góðri baráttu til að bera klæði á þeirra helstu vopn sem geta annars verið nokkuð skæð.
Okkar strákar eru vel stemmdir fyrir leikinn og öllum er ljóst að alvaran er hafin á ný. Nú verða menn að leika grimma vörn allan tímann því ef það tekst þá næst upp sá hraði sem við viljum hafa í leikjum. Hraðinn vinnur með okkur því breiddin er góð og allir vita að Keflavík kann best við sig þegar æsingurinn nær hámarki.
Við erum vel mannaðir undir körfunum með þá Derrick, Nick, Fannar, Halldór og Jonna og ættum að geta nýtt þann styrk bæði í vörn og sókn. Til þess þurfum við þó skynsaman sóknarleik og við verðum að leita inn í teiginn með boltann. Ef það tekst fá skytturnar pláss og þær munu nýta sín tækifæri, svo mikið er víst.
Von er á hörkuleikjum gegn Tindastóli og mikilvægt er að reyna að landa sigri í fyrsta leiknum, því staðreyndin er sú, að það lið sem vinnur fyrsta leikinn er afar líklegt til að vinna einvígið. Þess vegna er leikurinn á morgun alger lykilleikur.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!