Fréttir

Körfubolti | 4. apríl 2003

Nú er komið að því – fyrsti Íslandsmeistaraleikurinn er á mogun kl. 16!

Á síðustu leiktíð var Keflavíkurliðið ungt og lágvaxið. Samt stóðu drengirnir sig framar vonum og urðu m.a. Deildarmeistarar og léku tvívegis til úrslita gegn Njarðvík, fyrst í Kjörísbikarnum og síðan um þann stóra, sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Njarðvíkingar voru þó greinilega betri og niðurstaða Keflvíkinga var sú að ef menn ætluðu sér að eiga séns á “þeim stóra” yrði liðið að styrkjast undir körfunum. Því var einum stórum manni bætt við liðið og menn töldu að nú væri komin rétta blandan til að gera tilkall til titla.

Eftir smá vandræðagang í upphafi gekk Ed Saunders til liðs við Keflavík og upp frá því hefur gangur liðsins verið afar góður. Liðið hefur leikið 3 leiki í Bikarnum og unnið þá alla (og varð Bikarmeistari), leikið 10 leiki í deildinni og unnið 9 og leikið 6 leiki í úrslitakeppninni og unnið 5, sem sagt 17 sigrar í 19 leikjum. Og nú er komið að því sem við höfum beðið eftir í heilt ár - að gera aðra atlögu að Íslandsmeistaratitlinum.

Okkur tókst að leggja Njarðvíkinga að velli í undanúrslitunum og nú er komið að Grindavík. En Grindavík er einmitt það lið sem hefur leikið best gegn okkur í vetur og má því búast við hörkuleikjum. Skoðum aðeins liðin í samanburði:

Leikstjórnun:
Darryl Lewis stjórnar leik þeirra Grindvíkinga, ásamt því að vera aðal-stigaskorarinn og næst besti frákastarinn. Hann er sérlega flinkur við að þoka sér nærri körfunni og skófla boltanum yfir varnarmenn. Einnig getur hann smellt þristum og veit vel að í kringum hann eru góðar skyttur sem geta bombað ógurlega. Vara-stjóri er Helgi Jónas, en kann er kannski frekar skorari en stjóri.

Keflavíkurmegin er Falur reynslubolti Harðarson, en auk hans tekur Sverrir Þór oft við leikstjórninni sem og Damon, sér í lagi í lok leikja. Falur hefur átt mjög góða leiki á seinni hluta tímabils og þegar hann er í toppformi er hann einn besti stjórinn sem við höfum séð hér á landi. Damon er náttúrulega baneitraður, þótt hann sé ekki “náttúrulegur” leikstjórnandi.

Heilt yfir eru bæði liðin vel mönnuð í þessari stöðu, en Grindavík kannski örlítið fremri þar sem Darryl er hreint frábær.

Skyttur / skorarar:
Hér eru bæði liðin frábær. Þegar hefur verið minnst á Darryl hjá Grindavík, en auk hans hefur Helgi Jónas átt eitt sitt besta tímabil og mönnum er t.d. enn í fersku minni þegar hann setti 20 stig á Kef í síðasta leikhlutanum um daginn. Hann er ótrúlega snöggur og getur dottið í stuð, en það einkennir líka Pál Axel og Gulla Eyjólfs. Báðir skínandi skyttur sem á góðum degi geta sett allt oní. Páll er reyndar fjölhæfari og getur einnig skorað nálægt teignum en Gulli er “púra” skytta. Þar utan er Gummi sem setur frí skot oní en skorar annars mest nálægt körfunni.

Keflavík á svaklegt vopnabúr. Um Damon þarf ekki að fjölyrða, hann virðist alltaf finna leið til að skora þegar mikið liggur við. Ed hefur farið vaxandi og skorar á ansi fjölbreyttan hátt. Hann hefur prýðilegt stökkskot, jafnvel fyrir utan 3ja stiga línuna, er góður undir körfunum og síðast en ekki síst er hann hrikalegur troðari. Gaui, Maggi, Gunni Einars og Falur eru allir skyttur á landsmælikvarða og kannski enginn betri en Gaui sem hefur haft um 60% nýtingu í úrslitakeppninni til þessa – sem er hreint ótrúlegt. Jonni og Sverrir eru “slasharar” sem skora mest með keyrslum inn í vörnina og eru líka drjúgir í sóknarfráköstum.

Það er okkar skoðun að betra jafnvægi sé í sóknarleik Keflvíkinga – innan og utan teigs – en samt eru Grindjánar illviðráðanlegir þegar þeir “detta í stuð”.

Teigurinn:
Þarna hefur Keflavík klárlega forskot. Ed, Damon og Jonni og jafnvel Gunni Einars eru klárlega sterkari en Gummi, Pramenko og Páll Axel. Spurningin er bara hvort þeir finna leið til að nýta þennan styrklega.

Vörnin:
Bæði liðin eru góð varnarlið, t.d. eru Helgi Jónas og Sverrir Þór líklega bestu varnarbakverðir landsins. Bæði lið beita oft pressuvörnum, Keflavík þó oftar, og bæði notast við svæðisvarnir í bland við maður-á-mann. Í upphafi leiks eru varnirnar líklegast álíka góðar, en eins og síðar verður vikið að, hefur Keflavík meiri breidd og ætti því að geta haldið uppi hámarks tempói í lengri tíma.

Liðsheildin:
Forskot hjá Keflavík, þar sem breiddin er meiri. Byrjunarliðin eru álíka sterk, kannski myndu sumir segja að byrjunarlið Grindjána sé jafnvel sterkara, ekki síst vegna þess að þeir nota ávallt sama byrjunarliðið og greinilega er um að ræða 5 aðalmenn og 5 varamenn. Hjá Kef eru ávallt Damon og Ed í byrjunarliðinu en hinar þrjár stöðurnar skiptast á milli sex leikmanna. Og þar af leiðandi á Keflavík fleiri topp-leikmenn en Grindavík. Þeir ættu því betur að þola villuvandræði og erfitt leikjaprógramm. Þó er alls ekki sjálfgefið að breiddin skili sér, t.d. ef sveiflurnar verða miklar í leikjunum, þá fá byrjunarliðsmenn Grindavíkur meiri hvíld.

Heimavöllurinn / stuðningsmenn:
Bæði lið eru afar sterk á heimavelli og finnst flestum andstæðingum mjög erfitt að keppa í Röstinni og í Sláturhúsinu. Litlu trommararnir fara framarlega í stuðningsmannahópi Keflavíkur og hafa gert mikið til að bæta stemminguna sem hefur verið frábær í undanförnum leikjum. Sigga fer fyrir Grindjánum í trommulausri Röstinn og eftir nokkra ládeyðu hafa Grindjánar ákveðið að fjölmenna að nýju í húsið. Við teljum að Grindavík hafi forskot hér, einfaldlega vegna þess að þeir eiga kost á fleiri heimaleikjum.

Þjálfararnir:
Tveir af bestu þjálfurum landsins, báðir sigursælir og reyndir, þó ungir séu að árum. Siggi hefur þó vinninginn þegar litið er til beinnar keppni þeirra á milli í úrslitum Íslandsmótsins, en þeir hafa tvívegis áður mæst í úrslitum, fyrst árið 1997 þegar Keflavík vann Grindavík og síðan árið 1999 þegar Keflavík vann Njarðvík 3-2 í eftirminnilegri rimmu.

Niðurstaða:
Tvö frábær lið sem leikið hafa best allra í vetur. Ef að Grindavík ætlar að vinna þurfa skytturnar að vera í stuði, a.m.k. í öðrum hverjum leik, þ.e.a.s. á heimavelli. Ef hins vegar Keflavík nær að loka á skytturnar og hægja á Lewis þá eru sigurlíkurnar Keflavíkurmegin, þar sem Keflavík á stærra vopnabúr og hefur meiri breidd í vörn og sókn. En allt getur gerst.

Það er trú Heimasíðunnar að úrslit ráðist í fjórum eða fimm leikjum, og að sjálfsögðu höfum við fulla trú á því að okkar menn standi uppi sem sigurvegarar að lokum. Leikirnir eru allir sýndir beint á Sýn en allir sannir köfuboltaáhugamenn munu flykkjast á völlinn, því stemmingin í svona leikjum er engu lík – ÁFRAM KEFLAVÍK!!