Nú eru 40 sæti laus í stuðningsmannastúkunni eftir stækkun
Eins og margir muna þá voru settir nýjir bekkir á gólf íþróttahússins s.l. vetur. Með nýju bekkjunum stækkaði stuðningsmannastúkan úr 120 í 160 sæti. Nú eru því 40 sæti laus og viljum við reyna að fylla nýju stúkuna í haust. Þeir félagar og stjórnarmenn Birgir Már Bragason og Guðsveinn Ólafur Gestsson (Sussi) eru stuðningsmannastjórar og er áhugasömum bent á þá.
Þess skalt getið að í vetur munum við leika a.m.k. þrjá heimaleiki í Evrópukeppninni og verða þeir leikir innifaldir í mánaðargjaldi stuðningsklúbbsins.
Leikmenn og stjórn Keflavíkur settu upp bekkina s.l. vetur og hér má sjá þá að störfum: