Nú hefst nýtt einvígi gegn Grindavík, það áttunda á tíu árum
Þau eru orðin ansi mörg einvígin sem Grindavík og Keflavík hafa háð á undanförnum árum og nú mætast þessi félög þriðja árið í röð. Menn muna vel eftir úrslitarimmunni fyrir ári þegar Keflavík vann öruggan 3-0 sigur. Vorið 2002 léku liðin í undanúrslitum og þá vann Keflavík einnig, 3-1. Þar áður mættust liðin vorið 2000 en þá sló Grindavík Keflavík út í 8-liða úrslitum 2-1. 1999 vann Keflavík 3-1 í undanúrslitum og þar var meðal annars einn þríframlengdur leikur sem endaði 122-119 (!) þar sem Damon Johnson skoraði 51 stig. 1997 mættust liðin í úrslitum og þá vann Keflavík öruggan 3-0 sigur. 1996 mættust þau einnig í úrslitum en það var í eina skiptið sem Grindavík varð meistari eftir 4-2 sigur. 1995 vann Grindavík einnig, nú í undanúrslitum, 3-2. Á síðustu 10 árum hafa þessi félög sem sagt mæst sjö sinnum og fjórum sinnum hefur Keflavík haft betur, þar af tvisvar á síðustu tveimur árum. Af þessum sjö einvígum hafa 5 unnist af því liði sem á heimavallarréttinn en tvö af því liði sem byrjar á útivelli.
Í dag eru þessi lið kannski áþekk að styrkleika og hafa ýmislegt sameiginlegt. M.a. má sjá að í báðum liðum eru fjórir leikmenn sem hafa skorað yfir 10 stig að meðaltali í úrslitakeppninni. Hjá Grindavík eru það Lewis (32), Jones (17), Rogers (17) og Páll (14). Páll hefur stigið aðeins tilbaka með tilkomu nýja Kanans, en allir vita þó hve skeinuhættur Páll er þegar sá gállinn er á honum. Næstir í stigaskorun koma síðan Pétur (8) og Gummi Braga (8). Leikur Grindavíkur byggist mikið á því að Lewis og sá nýji, Jones, búa til færi upp úr einspili, fyrir sjálfan sig eða aðra. Jones hefur náð 37 stoðsendingum í 3 leikjum og er greinilega örlátur á boltann. Lewis er samt sem fyrr prímusmótorinn í liðinu og sigur gegn Grindavík byggir á því að það takist að hemja Lewis og koma í veg fyrir að Páll fari á flug.
Hjá okkur eru stigahæstir Derrick (27), Nick (17), Magnús (14) og Fannar (12). Næstir koma þeir Gunnar (9), Arnar (8) og Jonni (7). Okkar lið hefur gríðarlegan styrk undir körfunum með þá Derrick, Fannar, Nick og Jonna, en til að leikurinn verði sem bestur þurfa skytturnar að setja þetta 7-9 þrista og ná upp stöðugleika. Eins er mikilvægt að vörnin loki á gegnumbrot því þar eru Grindjánar skæðir.
Framundan er eflaust frábært einvígi og ljóst er að okkar menn þurfa að halda heimavellinum hreinum og ná einum sigri í Grindavík. Fyrsta tækifærið til þess gefst á morgun.
ÁFRAM KEFLAVÍK!!!