Nú koma Frakkarnir í heimsókn!
Næstu andstæðingar Keflavíkur í Bikarkeppni Evrópu er franska liðið Hyeres-Toulon Var (HTV). . Hér er mynd af leikmönnum og þjálfarasveit liðsins.
Félagið er frá frönsku borgunum Hyeres og Toulon í héraðinu Var á Rívíerunni á suðurströnd Frakklands. Íbúafjöldinn á bak við félagið er um 350 þúsund og þess má geta að félagið hefur á að skipa fjölmennasta yngri flokka starfi í Frakklandi. Á þeirra vegum keppa yfir 500 leikmenn, en til gamans má geta þess að hjá Keflavík eru skráðir iðkendur um 350 og telst Keflavík því líklega stórt í alþjóðlegum samanburði, þegar litið er til unglingastarfs.
Hyeres Toulon hefur lengst af leikið í PRO B deildinni í Frakklandi, en fyrir þremur árum komst félagið upp í PRO A (sem er efsta deildin) og hefur fest sig í sessi þar með góðri spilamennsku. Sem stendur, að 10 umferðum loknum, er liðið í 10-11. sæti af 18 liðum, með fjóra sigra og sex töp. Franska PRO A deildin gildir sem eins sterkasta deildin í Evrópu, ásamt deildum í suður Evrópu og í Litháen og Rússlandi. Franskur körfubolti telst með því besta í Evrópu og urðu Frakkar í 3ja sæti á Evrópukeppninni í Svíþjóð í haust. Einnig hafa Frakkar átt sigurvegara í Meistaradeild Evrópu, Limoges. Helsta stjarna Frakka um þessar mundir er Tony Parker, bakvörðurinn snöggi hjá meisturum San Antonio Spurs í NBA.
Töluverðir peningar eru í frönsku deildinni og má geta þess að kostnaðaráætlanir frönsku félganna eru á bilinu 150 til 650 milljónir kr. Ef þetta er borið saman við þær 500 þús. kr. sem er mánaðarlegt launaþak á Íslandi má sjá að þetta er allt allt annað umhverfi. Gera má ráð fyrir að Toulon hafi á ári hverju jafn mikið fé til umráða og Keflavík hefur á 15 árum!
Í Bikarkeppni Evrópu hefur Toulon leikið fjóra leiki, unnið tvo og tapað tveimur. Toulon vann öruggan sigur á Keflavík í fyrri umferðinni, 107-91, en það er eini ósigur Keflavíkur til þessa í keppninni, en jafnframt eini útileikurinn. Hér má lesa umfjöllun um þann leik.
Helstu stjörnur Toulon liðsins eru eftirtaldir:
Jason Rowe, bandar. bakvörður frá Loyola háskólanum, 25 ára, 1,76 m, 17 stig að meðaltali og 6 stoðs. Ótrúlega fljótur og kraftmikill leikmaður. Hér sést hann troða léttilega í leik um daginn.
Floyd Miller, miðherji frá Vincent, eyju í Karabíska hafinu, 30 ára, frá Bowling Green háskólanum í Bandaríkjunum, 2,00 m, 13 stig og 6 frák. að meðaltali. Mikill reynslubolti sem m.a. hefur leikið með frönsku liðunum Nancy og Lyon.
Nedeljko Asceric, framherji frá Serbíu, 38 ára, 1,98m, 11 stig, góð 3ja stiga skytta, skoraði 18 stig gegn Keflavík í fyrri leiknum.
Wade Gugino, bandar. miðherji, 33 ára, 2,06, 11 stig og 5,5 fráköst, gerði 16 stig gegn Keflavík í fyrri leiknum.
Laurent Legname, franskur bakvörður, 26 ára, 1,85m, 6 stig að meðaltali í deild, en stigahæstur í Evrópukeppninni, með 15 stig að meðaltali. Mikil 3ja stiga skytta, hefur sett 16 af 35 í keppninni. Skoraði 19 stig gegn Keflavík, hitti úr 4 af 7 þristum. Legname kemur úr yngri flokkum Toulon og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins.
Franck Bouteille, franskur framherji, 32ja ára, 2,00m, 9,5 stig, 4,5 frák, skoraði 14 stig gegn Keflavík. Bouteille hefur leikið með Toulon undanfarin fjögur ár.
Hér eru tölur leikmanna Toulon í frönsku deildinni.
Hér eru tölur leikmanna Toulon í Bikarkeppni Evrópu.
Við bjóðum franska gesti okkar velkomna til Keflavíkur og tökum vel á móti þeim. Þeir voru fyrirtaks gestgjafar þegar við heimsóttum þá fyrr í haust og vonandi getum við endurgoldið þeim gestrisnina. Án efa verður barist hart á miðvikudaginn, þar sem hver leikur skiptir verulegu máli um endanlega röð liða í riðlinum.