Fréttir

Körfubolti | 5. ágúst 2005

Nýjar fréttir frá Tampere

Keppnin hófst í gær með innbyrgðisviðureign Keflavíkurhraðlestarinnar og þar átti sér stað hörkubarátta milli 17 vinkvenna og mátti vart sjá að þær æfðu sem eitt lið.  Fátt nýtt sást í leik stúlknanna nema helst að Hrafnhildur Rósa stóð sig mjög vel.  Leiknum lauk með sigri Keflavík 1 30-13. 

Í morgun spilaði Keflavík 1 gegn JÄNMKY, eftir að hafa lent 7-0 undir í byrjun tóku stelpunar sig saman og jöfnuðu leikinn 20-20, en finnsku stúlkurnar höfðu heppnina með sér og innbyrgðu nauman sigur 20-25.  Telma Lind og Eva Líf áttu mjög góðan leik og héldu liðinu á floti, en augljóst var að stelpurnar voru taugaóstyrkar í sínum fyrsta milliríkjaleik enda ungar að aldri.

Keflavík 2 spilaði á móti Scania Cup sigurvegurunum í ár RaPy frá finnlandi.  Stelpurnar komu verulega á óvart í fyrri hálfleik með frábærum varnarleik sem finnsku meistararnir áttu í mesta basli með.  Staðan í hálfleik var 10-10 og allt í járnum.  Kristjana Vigdís, Sigrún Alberts. og Árný Sif spiluðu glymrandi vel og gaman að sjá hve líkamsstyrkur þeirra fékk að njóta sín, einnig áttu góðar innkomur Helena Ösp sem sýndi á sér nýjar hliðar og reif niður nokkur fráköst svo ekki sé minnst á innkomu Emelíu sem skoraði þriggja stiga körfu ný kominn inná.

Síðar í dag eiga bæði liðin erfiða leiki fyrir höndum sem fjallað verður um í næsta pistli.

Stigaskor:

Keflavík 1 - Keflavík 2 : 30-13
Keflavík 1: Telma Lind 8, Eva Líf 7, Hrafnhildur Rósa 6, Birgitta Ósk 4, María Ben 3 og Sigrún Ásta 2.
Keflavík 2: Sigrún Alberts 6, Árný Sif 5 og Sara Dögg 2.

Keflavík 1 - JÄNMKY : 20 - 25
Keflavík 1: Eva Líf 10, Telma Lind 6 og María Ben 4.

Keflavík 2 - RaPy : 19 - 38
Keflavík 2: Árný Sif 8, Kristjana Vigdís 5, Helena Ösp 3 og Emelía 3.


Glaðbeittur hópur


Árný Sif skorar gegn RaPy 


Eva Líf skorar gegn JÄNMKY