Nýjir áhorfendapallar gegn Breiðabliki!
Um síðustu helgi stóð körfuknattleiksdeildin að uppsetningu nýrra áhorfendabekkja á gólfi íþróttahússins. Bæjarstjórn ákvað á dögunum að kaupa þessa bekki og var þeim komið upp í hvelli. Stjórnarmenn, leikmenn og stuðningsmenn hjálpuðust að við uppsetninguna og munum við birta myndir frá "vinnandi mönnum" um leið og þær berast frá Sævari ljósmyndara . . .
Meðlimir stuðninsmannaklúbbsins geta prófað bekkina í kvöld en þá kemur Breiðablik í heimsókn í tíundu og næst síðustu umferð Intersport-deildarinnar fyrir áramót. Leikur okkar liðs hefur verið ansi rysjóttur upp á síðkastið, en vonandi tekst mönnum að hrista af sér slyðruorðið í kvöld.
Jonni er enn fjarverandi vegna meiðlsa og óvíst er hvort Hjörtur leiki, en hann stendur í ströngu þessa daga við próflestur. Aðrir eru klárir svo við vonumst eftir góðri stemmingu í liðinu í kvöld.
ÁFRAM KEFLAVÍK!