Nýjir þjálfarar hjá Keflavík
Eins og fram hefur komið hefur Sigurður Ingimundarson látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Keflavík. Í hans stað hafa verið ráðnir tveir þjálfarar, þeir Falur Harðarson og Guðjón Skúlason. Þeir eru Keflvíkingum að góðu kunnir fyrir listir sínar á leikvellinum, auk þess sem báðir hafa þjálfað yngri flokka í gegnum tíðina. Falur þjálfaði einnig meistaraflokk kvenna hér á árum áður.
Þeir félagar munu skipta með sér verkum eftir því sem á líður, en þegar er þó ljóst að Falur mun einnig leika með liðinu í vetur. Körfuknattleiksdeildin óskar þeim félögum til hamingju með nýja starfið og veit að það verður krefjandi, enda mikið framundan í haust.
Guðjón mun jafnframt láta af starfi sínu sem þjálfari kvennaliðsins en í hans stað mun landsliðsþjálfarinn Hjörtur Harðarson koma. Við vitum að þar fer hæfur þjálfari og mun hann eflaust láta gott af sér leiða. Við óskum Hirti alls hins besta með stúlkurnar.