Nýjir þjálfarar hjá yngri landsliðum stúlkna
Stjórn KKÍ hefur ráðið tvo nýja þjálfara hjá yngri landsliðum stúlkna.
Margrét Sturlaugsdóttir frá Keflavík hefur verið ráðin þjálfari U-18 kvenna. Margrét sem er fyrrverandi landsliðskona hefur þjálfað yngri flokka stúlkna í Keflavík síðustu árin með frábærum árangri. U-18 kvenna fer á Norðurlandamót í vor.
Jón Halldór Eðvaldsson frá Keflavík sem er núverandi þjálfari Íslands og bikarmeistara meistaraflokks kvennaliðs Keflavíkur hefur verið ráðinn þjálfari stúlkna sem eru fæddar 1994 eða síðar. Fyrsta verkefni þeirra verður Norðurlandamót vorið 2010.
Frétt tekin af www.kki.is