Nýjung í úrslitakeppninni
Úrslitakeppnin er að hefjast og er fyrsti leikur í kvöld kl.19.15 gegn Tindastól. Nýjung verður í boði fyrir alvöru stuðningsmenn Keflavíkur. Hægt verður að kaupa númeraðan VIP miða niðri, og með því fylgja veitingar í hálfleik í B-sal. Miðann er hægt að nálgast í miðasölu á leiknum. Við ætlum að vera með þetta í boði alla úrslitakeppnina. Annars mun kosta 1000.kr fyrir fullorðna, 500.kr- fyrir börn á aldrinum 12-16 ára og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Vildarvinakort gilda ekki á úrslitakeppnina. Sem fyrr verður Borgarskot Iceland Express á sínum stað þar sem áhorfendur fá tækifæri til þess að vinna sér ferð út í heim sé sigtið rétt stillt og þá hefur Iceland Express einnig boðað áframhaldandi leiki og skemmtanir á körfuboltaleikjunum svo það ætti ekki að vera dauð sekúnda í úrslitakeppninni.