Fréttir

Körfubolti | 15. desember 2004

Nýliðar Fjölnis mæta í Sláturhúsið á morgun í síðasta leik ársins

Síðasti leikur karlaliðs okkar á árinu verður á morgun þegar nýliðarnir frá Fjölni koma í heimsókn. Óhætt er að segja að leikurinn sé mikilvægur, því það lið sem hefur sigur tryggir sér a.m.k. annað sætið í jólafríinu. Fjölnir hefur komið liða mest á óvart í vetur, enda sitja þeir sem stendur í öðru til fjórða sæti ásamt Kef og Snæfelli, tveimur stigum á eftir Njarðvík. Toppbaráttan verður því í algleymingi í leiknum.

Þríeykið Jeb Ivey, Darrel Flake og Nemanja Sovic eru burðarásar liðsins, enda hafa þeir þeir gert tæp 80% af stigum liðsins það sem af er vetri. Ekki skal þó litið framhjá Íslendingunum sem hafa staðið sig vel, sérstaklega í varnarleiknum, ekki síst Brynjar Kristófersson, og svo hafa þeir Pálmar Ragnarsson og Hjalti Vilhjálmsson skorað samtals um 12 stig á leik að meðaltali.

Hrósa verður þjálfaranum og aðstandendum liðsins fyrir val þeirra á erlendum leikmönnum, því þeir leituðu ekki langt yfir skammt. Benedikt Guðmundsson þekkir körfuboltaheiminn á Íslandi vel og veðjaði á rétta hesta þegar hann sótti þá Jeb Ivey og Darrel Flake til liðsins, en þeir höfðu báðir vakið athygli á undanförnum árum, Jeb með KFÍ og Flake með KR. Jeb er afar skotviss, er með yfir 50% hittni í þriggja stiga skotum og 93% vítanýtingu. Þetta eru sjaldséðar tölur. Flake er leikmaður af "gamla skólanum" þótt ungur sé að árum, hann nýtir vel leikni sína undir körfunum (tæp 60% hittni) og er drjúgur í fráköstunum, tekur að meðaltali 14 slík í leik. Sovic er alhliða leikmaður sem hefur kommið vel út hjá Fjölni.

Gaman verður að sjá "nýtt" lið spreyta sig gegn Íslands- og bikarmeistununum í Sláturhúsinu fræga. Keflavík er í fínu formi og ljóst er að Siggi Ingimundar mun leggja áherslu á að leikmenn keyri sig vel út í síðasta skiptið fyrir jól. Leikjaprógrammið hefur verið þungt og hvíldin verður velkomin, en mikilvægt verður að ná einum góðum leik fyrst. Allir eru heilir og ekkert að vanbúnaði. Við bjóðum því Fjölnismenn velkomna til Keflavíkur í fyrsta sinn til keppni í úrvalsdeild og vonum að okkar menn verði einbeittir frá fyrstu sekúndu.