Fréttir

Körfubolti | 3. júlí 2005

Nýr Leikmaður í mfl.karla

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur fengið góðan liðsstyrk.

Um er að ræða leikmann með Makedónískt ríkisfang, Pilturinn heitir Zlatko Gocevski er 206 cm og 105 kg.http://www26.brinkster.com/gsports/playerdet.asp?ID=252. Zlatko leikur stöðu 4 og 5.  Er sagður fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað með bakið í körfuna, skotið 3ja stiga og “dræfað” að körfunni. 

Á síðustu leiktíð lék Zlatko með Vardar Osiguranje í Skopje. Vardar Osiguranje varð deildarmeistari í efstu deild Makedóníu eftir taplausa deildarkeppni en töpuðu í úrslitum fyrir Fershped Rabotnicki (Finals).   Vardar Osiguranje lék einnig til úrslita í Makedónísku Bikarkeppninni og lutu þá einnig í lægra haldi fyrir Fershped Rabotnicki.

Zlatko Gocevski var lykilmaður hjá liði sínu.  Skoraði að meðaltali 18,5 stig og tók 11 fráköst á síðasta tímabili.

Þess má einnig geta að Zlatko hefur leikið í efstu deild Makedóníu frá 16 ára aldri, þó ungur sé aðeins 23 ára, hefur hann leikið 6 tímabil í efstudeild.  Þar að auki hefur hann leikið með öllum landsliðum Makedóníu (U17, U20 og Landsliðið).  

KKDK væntir mikils af þessum leikmanni og þá er bara að vona að hann standi undir þeim væntingum

Leit að bandarískum leikmann er einnig kominn vel á veg.