Fréttir

Körfubolti | 1. apríl 2003

Oddaleikur í Grindavík í kvöld – spáð í spilin

Sú skemmtilega staða er nú komin upp í öðrum undanúrslitunum að oddaleik þarf til að knýja fram úrslit mill Grindavíkur og Tindastóls. Þeir voru örugglega ekki margir sem höfðu trú á því að Tindastóll færi þetta langt, fyrst að slá út Haukana á útivelli og síðan að koma deildarmeisturum Grindavíkur út í horn. En Kiddi Gun lætur ekki að sér hæða og hefur hann (loksins) farið að leika eins og hann á að sér, eftir að hafa verið frekar rólegur í vetur. Hann dregur vagninn hjá Norðanmönnum og er Grindjánum erfiður ljár í þúfu, ekki síður inni í teignum en utan 3ja stiga línunnar. Segja má að Tindastóll sé “lið stundarinnar” því þeir hafa komið verulega á óvart í úrslitakeppninni eftir að hafa lent í sjötta sæti deildarinnar. Það góða við Tindastól er kannski tvennt, þeir leika góða vörn og þeir hafa nokkuð gott jafnvægi í sóknarleiknum, þ.e. geta sótt inn í teig og skorað að utan.

Grindavík hefur aftur á móti valdið töluverðum vonbrigðum og þeir hafa ekki náð að sýna fullan styrk í úrslitakeppninni, enda hafa þeir aðeins unnið fjóra leiki af sjö gegn Hamri og Tindastóli. Skytturnar hafa ekki komist á flug nema helst Helgi Jónas (og Guðlaugur í fyrsta leiknum) svo hefur Darryl Lewis ekki náð að fylgja eftir frábærri spilamennsku í deildinni. Tvennt kemur þar kannski til, annars vegar meiðsli og svo hins vegar að andstæðingarnir hafa stúderað hans leik betur og spila því betri vörn.

En helsti veikleiki Grindavíkur er “inside” leikurinn, þar sem “gamla brýnið” Guðmundur Bragason er nánast einn á ferð, því Páll Axel er mest megnis utan 3ja stiga línunnar. Gummi hefur reyndar átt verulega góða leiki inn á milli, sbr. þriðja leikinn gegn Stólunum, en því er ekki að leyna að það reynist honum erfitt að leika 40 mínútur í leik, dag eftir dag. Grindjánar hafa fengið tvo Bosmann leikmenn til sín eftir að Pétur og Dagur duttu úr leik, en Bosko gerði lítið og Pramenko er svona la la, þótt vissulega sé hann stór og sterkur.

Gera má ráð fyrir spennandi leik í kvöld því nú er allt lagt undir. Ljóst er að pressan er á Grindavík því ef þeir tapa leiknum má segja að leiktíðin sé vonbrigði (þrátt fyrir deildarmeistaratitilinn, því hann hefur í reynd ekki mikið vægi). Það sem maður hefur verið að bíða eftir hjá Grindjánum er að þeir hreinlega detti í stuð, líkt og í síðasta heimaleik gegn Keflavík í deildinni, þar sem hreinlega allt fór oní. Slíkt hefur maður oft séð í Grindavík og nú er rétti tíminn. Samt er eins og að sjálfstraustið sé ekki í toppi þessa dagana og ef taugaveiklun gerir vart við sig er erfitt að hitta vel.

Möguleikar Tindastóls liggja ekki síst í því að liggja vel í skyttunum úti á vellinum og sækja síðan grimmt undir körfuna í sókninni og reyna helst að koma Gumma Braga í villuvandræði, því hann er alger lykilmaður í varnarleik heimamanna.

Svo þegar í leikinn er komið getur allt gerst! Heimasíðan er ekki sannfærð en myndi samt leggja fé á Grindavíkursigur, þó ekki mikið. Aðalatriðið fyrir Keflvíkinga er að njóta körfuboltans og sjá síðan hverjum við mætum í úrslitum.