Oddaleikur í Keflavík í kvöld hjá stelpunum
Stelpurnar mæta ÍS í Keflavík í kvöld í undanúrslitum Íslandsmótsins. Það lið sem vinnur leikinn í kvöld er komið í úrslit og mætir Grindavík. Keflavík vann fyrsta leikinn í Keflavík 77-71 en tapaði leik númer tvö í Kennaraháskólanum 75-54. Leikurinn í kvöld er afar mikilvægur enda um titilvörn hjá okkar stelpum að ræða. Í síðasta leik voru margir leikmenn liðsins að leika undir getur og aðeins Alex sem spilaði vel. Alex skoraði 24 stig og reif niður 11 fráköst þó hún sé ekki stærsti leikmaðurinn á vellinum. Anna María skoraði 12 og var með 9 fráköst en aðrar eiga mikið inni.
Við hvetjum stuðningsmenn og konur Keflavíkur að mæta í Sláturhúsið í kvöld og hvetja stelpurnar áfram. Enginn efast um að þær hafa á að skipa frábæru liði og geta sigrað ÍS með góðum stuðningi áhorfenda. Áfram Keflavík!!
Mynd af VF.is