Fréttir

Körfubolti | 29. mars 2003

Óformleg Reykjanesbæjarkeppni: Keflavík 5 – Njarðvík 0

Í fyrsta skiptið í körfuboltasögunni áttust lið Keflavíkur og Njarðvíkur við í undanúrslitum karla og kvenna. Skemmst er frá því að segja að okkar piltar og stúlkur stóðu sig vel í þessari keppni – konurnar unnu 2-0 og drengirnir 3-0. Samtals vann Keflavík því undanúrslitin 5-0 og getur því talist óformlegur Bæjarmeistari Reykjanesbæjar í körfubolta þetta árið. Til hamingju með það Keflvíkingar!

Heilt yfir þá kepptu strákarnir fyrst í Valsmótinu og svo í Reykjanesmótinu. Keflavík vann þær viðureignir. Síðan kom deildarkeppnin og þá snerist dæmið við, Njarðvík vann báða leikina, 2-0. En svo vann Keflavík þá fjóra úrslitaleiki sem eftir voru, fyrst í 8 liða úrslitum Bikarkeppninnar og síðan 3-0 í úrslitakeppninn. Ef allt er til tekið vann Keflavík því 6 leiki en Njarðvík 2. Sem sagt, gott ár fyrir Keflavík í innbyrðisviðureignum.

Stúlkurnar hafa yfirleitt unnið Njarðvík, en svo bar undir í ár að Njarðvík stöðvaði sigurgöngu Keflavíkur í ár og náði því einum sigri í fjórum leikjum deildarkeppninnar. Með úrslitakeppninni léku liðin alls sex sinnum og hafði Keflavík sigur í fimm leikjum.

Í heildina kepptu því félögin alls 14 sinnum í vetur og vann Keflavík 11 leiki en Njarðvík 3. Sem sagt, gott ár fyrir Keflavík í Reykjanesbæjarsamkeppninni.