Óheppnin eltir Gunnar Einarsson - nú reif hann sinar í fingri
Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflavíkurliðsins, er vægast sagt lánlítill þessa dagana. Hann meiddist á hné um daginn og var farinn að láta reyna á það á æfingu, þó ekki hafi hnéð verið orðið nógu gott. En æfingin endaði illa fyrir Gunnar, því hann meiddist illa á fingri með þeim afleiðingum að sauma þurfti 6 spor í fingurinn þar sem sinar höfðu rifnað og mikið blætt úr fingrinum. Ekki er þó puttinn brotinn. Líklegt má telja að Gunnar verði frá í 8-10 daga, þó ekki sé það enn pottþétt.
Þetta er slæmt fyrir liðið, því líklegast verður Gunnar ekki með gegn Tindastóli, nema hann hljóti óvenju skjótan bata, bæði á hné og fingri. En Gunnar er hörkutól og jafnar sig örugglega snemma. Aðrir leikmenn verða nú að taka sig enn frekar á og fylla hans skarð í fyrstu leikjum úrslitakeppninnar.
Heimasíðan óskar Gunnari skjóts og góðs bata.