Öll kvennalið Keflavíkur í bikarúrslitum um helgina
Um helgina er mikil hátíð yngri flokkum körfuboltans en þá fara fram úrslit í Bikarkeppni KKÍ.
Það er Stjarnan sem hefur veg og vanda að framkvæmd bikarúrslitanna þetta árið og fara allir úrslitaleikirnir fram í Ásgarði.
Keflvíkingar eiga lið í öllum úrslitaleikjum kvennamegin en náðu ekki að koma neinu karlaliði í úrslit að þessu sinni. Alls er keppt til úrslita í níu flokkum en yngsti aldurinn sem tekur þátt í bikar er 9. flokkur.
Segja má að þarna leiki í mörgum tilfellum bestu lið landsins saman og því hvetjum við alla körfuboltaunnendur til að kíkja við í Garðabænum um helgina og fylgjast með mörgum af efnilegustu körfuboltamönnum landsins og fá jafnvel smá skammt af alvöru dramatík í leiðinni !
Sport-TV mun sýna beint frá öllum leikjum helgarinnar og einnig verða leikirnir sendir út í lifandi tölfræði á www.kki.is.
Koma svo Keflavík - Bikarinn heim........