Öllum Keflvíkingum boðið í kökuveislu á föstudaginn þegar Gaui stórskytta og Siggi þjálfari verða formlega “kvaddir”
Á föstudaginn hefst Intersport deildin hjá Keflvíkingum þegar Hamarsmenn koma í heimsókn. Hamar er óskrifað blað sem oft áður í upphafi leiktíðar og verður gaman að taka á móti þeim.
Þessi leiktíð verður sú fyrsta í ansi mörg ár þar sem Sigurður Ingimundarson er ekki þjálfari og Guðjón Skúlason ekki leikmaður. Nánar tiltekið hefur Siggi þjálfað liðið undanfarin sjö ár og þar áður kvennaliðið í fimm ár. Guðjón hefur leikið alls 17 leiktíðir með Keflavík og samfleytt síðustu átta árin. Þessir piltar og félagar hafa verið afar farsælir og tekið þátt í mörgum sigrum hér í bæ.
Sigurður hefur sem þjálfari mfl. kv. orðið Íslandsmeistari 3svar og Bikarmeistari 4 sinnum, og sem þjálfari mfl. ka. Íslandsmeistari 3svar, Bikarmeistari 2svar og Kjörísmeistari 4 sinnum.
Guðjón er leikja- og stigahæsti leikmaður Keflavíkurliðsins frá upphafi. Hann hefur leikið 729 leiki með félaginu og skorað í þeim alls 11.802 stig. Sex sinnum hefur Guðjón orðið Íslandsmeistari, fjórum sinnum Bikarmeistari og fjórum sinnum Kjörísmeistari.
Í tilefni þess að Siggi er hættur að þjálfa og Gaui hættur að skjóta vill stjórnin kveðja þá með sæmd og mun bjóða öllum áhorfendum í kökuveislu að leik loknum.