Fréttir

Körfubolti | 13. janúar 2005

Olympic Fribourg-Keflavík kl 18.00

Leikur Keflavíkur og Olympic Fribourg verður lýst beint á síðunni með sama hætti og öðrum leikjum okkar í Evrópukeppninni. Leikurinn byrjar kl 18.00 að Íslenskum tíma. Sá möguleiki er líka fyrir hendi að leikurinn verði beint á FIBA Europe , en það er ekki alveg ljóst á þessari stundu. Gaman verður að vita hvernig okkar mönnum gengur gegn  Delmonte Madison, David Estercamp,  Slaven Smiljanic, Randall Nohr og Finnska tröllinu Ville Kaunisto.  Strákarnir láta vel að aðstæðum og allir klárir í leikinn.  Áfram Keflavík.