Önnur Suðurnesjamær landar borgarskoti
Enn og aftur náði ung Suðurnesjamær að landa borgarskoti Iceland Express, en það gerðist í leik Keflavíkur
og Njarðvíkur síðastliðinn mánudag. Sara Rún Hinriksdóttir, upprennandi körfuboltastjarna úr Keflavík,
gerði sér lítið fyrir og negldi þrist eftir að hafa gripið boltann í áhorfendastúkunni. Þetta skot gaf henni ferð
á einn af áfangastöðum Iceland Express. Það er greinilegt að ungu stelpurnar í Keflavík eru í fantaformi
þessa dagana og eiga ekki í erfiðleikum með að hitta ofan í körfuna, þrátt fyrir að vera undir mikilli pressu.
Góður undirbúningur fyrir framtíðina.
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur óskar Söru til hamingju með vinninginn.