Opnað hefur verið fyrir rafræna skráningu iðkenda í körfu
Opnað hefur verið fyrir rafræna skráningu iðkenda á keflavik.is/karfan og munu æfingar allra flokka körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefjast samkvæmt æfingatöflu þriðjudaginn 1. sept.
Allir iðkendur verða að vera skráðir. Öllum er frjálst að prófa æfingar í 1-2 vikur.
Unnið er að gerð æfingatöflunnar og verður hún sett á heimsíðuna fyrir 1. sept. nk.
Þjálfarar deildarinnar verða kynntir til leiks fljótlega á heimasíðunni.
ALLIR nýir iðkendur deildarinnar, í 1. til 6. bekk, fá frían keppnisbúning (treyja og stuttbuxur).
ALLIR skráðir iðkendur í yngri flokkum félagsins fá frítt á leiki meistaraflokksliða félagsins.
Allir flokkar munu æfa í 9. mánuði en gjaldskrá er skv. eftirfarandi:
1. og 2. bekkur kr. 33.300 (3.700 pr. mán) 2 æfingar í viku
3. og 4. bekkur kr. 38.700 (4.300 pr. mán) 3 æfingar í viku
5. og 6. bekkur kr. 44.100 (4.900 pr. mán) 4 æfingar í viku
7. flokkur og eldri kr. 48.600 (5.400 pr. mán) 4-5 æfingar í viku
Veittur er systkinaafsláttur 25% af heildarverði.
Við skráningu er boðið upp á greiðslu æfingagjalda með kreditkorti og líka greiðsluseðlum.
Ef greiðsluseðlar eru ekki greiddir fara þeir í innheimtu hjá Motus samkvæmt hefðbundnum leiðum.