Öruggt gegn KR í lokaleik
Það var ljóst á laugardeginum að stelpurnar myndu fá afhent deildarmeistaratitilinn í DHL-höllinni þegar þær mættu KR-stúlkum, en þetta var jafnframt lokaleikurinn í Iceland Express deild kvenna.
Yngri og óreyndari stúlkur fengu að spreyta sig og var sigurinn aldrei í neinni hættu. Öruggt alla leið og lokatölur 40-73 fyrir Keflavík.
Það liggur ljóst fyrir að Keflavíkurstúlkur eiga heimaleikjarétt og taka á móti Haukastúlkum í fyrsta leiknum laugardaginn 24. marst næstkomandi. Fyrsta lið til að sigra 3 viðureignir fer áfram alla leið í úrslitin. Í hinni viðureigninni eigast við Njarðvíkurstúlkur og Snæfellsstúlkur.
Keflavíkurstúlkur Deildarmeistarar 2012