Öruggur sigur á Stúdínum, 73-53
Keflavíkurstúlkur öttu kappi við Stúdínur í annað skiptið á fimm dögum í kvöld eftir að hafa sigrað þær í úrslitum Hópbílakeppninnar á laugardaginn. Líkt og í þeim leik var nokkurt jafnræði með liðunum framan af en í kvöld stakk Keflavík af í fjórða leikhluta sem vannst 18-4.
Keflavíkurliðið leikur fanta vörn í 40 mínútur og gaman að horfa á hve mikið stúlkurnar leggja sig fram. Sverrir þjálfari vill að allir leiki körfubolta eins og hann sjálfur, þ.e. endalaust í botni! Sú aðferð gengur vel og virðast stúlkurnar tilbúnar í varnarleik allan völlinn allan tímann. Það sem liðið þarf að læra er að láta aggressívan varnarleik ekki orsaka of mikil læti í sóknarleiknum því þar fara þær stundum of geyst. Því tapar liðið boltanum of oft bara við að flýta sér, án þess að erfiðleikar steðja að. Í kvöld tapaðist boltinn t.d. 28 sinnum, yfirleitt bara vegna þess að þær flýttu sér um of. Ef þær ná aðeins betri tökum á hraðanum í sókninni þá verður liðið bara betra. En greinilegt er að erfitt er fyrir andstæðingana að spila gegn Keflavíkurvörninni og má oft greina panikk hjá andstæðingunum.
Signý Hermannsdóttir átti stórleik hjá Stúdínum og er greinilega hörku player þegar hún beitir sér af fullum krafti. Hún skoraði 25 stig og var okkar konum erfið í kvöld. Einnig var Alda góð, að venju, en þær tvær eru ekki nóg til að eiga við Keflavíkurvörnina í 40 mínútur. Þess vegna tókst Keflavík að nýta sér það þegar ÍS fór að þreytast í lokin og okkar stúlkur tóku öll völd á vellinum.
Samt var leikur Keflavíkur ekki sérlega góður í sókninni, heilt yfir, en þær Reshea, Bryndís og Rannveig voru bestar í kvöld. Reshea náði þrefaldri tvennu, 27 stig, 10 stolnir og 11 fráköst, og var aðeins hársbreidd frá fjórfaldri tvennu, þar sem hún átti einnig 9 stoðsendingar. Bryndís skoraði 17 stig og hirti 7 fráköst, en hún er að verða einn af aðalleikmönnum liðsins, enda sérlega fit og gaman að sjá hana hlaupa völlinn, hún getur tekið frákast í vörninni, gefið boltann frá sér og verið síðan fyrst í sóknina og skoraði í hraðupphlaupi. Eftirtektarvert er hve vel hún grípur boltann og hve vel henni gengur að klára færin undir körfunni. Rannveig lék ljómandi vel í kvöld og nýtti færin sín vel. Anna María og Birna voru með rólegra móti. Marín lék ekki með vegna meiðsla og María Ben var veik. Svava og Bára áttu ágætar innkomur.
Einhvern veginn fannst manni að þrátt fyrir að munurinn væri ekki mikill lengst af, þá væri bara spurning hvenær Keflavík næði að stinga af. Það gerðist í síðasta fjórðungi, þegar boltanum var stolið í gríð og erg og auðveldar körfur sköpuðust í kjölfarið.
Nú eru hin liðin að styrkja sig og verður spennandi að sjá hvernig Kef-dömum gengur á móti nýju Könunum sem nú koma inn í deildina. Næsti leikur er gegn Grindavík næsta miðvikudag og þar verður nýr erlendur leikmaður kominn til UMFG.