Fréttir

Körfubolti | 10. mars 2005

Öruggur sigur í fyrsta leik í úrslitakeppninni

Það var einhvern veginn aldrei vafi á því hvort liðið væri sterkara í kvöld, Keflavík eða Grindavík. Reyndar var jafnvægi með liðunum í byrjun, t.d. 9-10 eftir fjögurra mínútna leik, en samt náði Keflavík forystunni strax og leiddi 28-22 eftir fyrsta leikhluta. Og í öðrum leikhluta fóru hlutir að gerast. Grindavíkurvörnin veitti ekki mikla mótstöðu og Keflavíkurpiltar virtust geta vaðið inn að körfunni nánast að vild. Gunnar drævaði oft skemmtilega, eins Jonni og Arnar og svo var Glover illviðráðanlegur fyrir Terrel Taylor. Og Terrel þessi kveikti síðan verulega í keflvískum leikmönnum og áhorfendum þegar hann, á mjög svo óíþróttamannslegan hátt, steig á Jonna þar sem hann lá varnarlaus á gófinu. Terrel uppskar óíþróttamannslega villu fyrir vikið, en margir voru á því að honum hefði átt að vera vikið af leikvelli. Hvað um það, þetta kveikti í Keflvíkingum sem tóku á sig rögg og juku muninn í 16 stig, ekki síst fyrir grimma vörn og góð dræv hjá Arnari og Sverri sem opnuðu færi fyrir Glover sem hafði lítið fyrir því að leggja boltann í körfuna.

Í hálfleik var staðan 53-43 fyrir Keflavík og í þriðja leikhluta kom góður sprettur, flottar troðslur frá Nick sem átti frábæran leik í kvöld (25 stig og 16 fráköst), og nokkrir þristar, þó þeir hafi verið af skornum skammti í kvöld, aðeins fimm af 18 slíkum rötuðu rétta leið. Munurinn jókst að nýju og rokkaði frá 8 og upp í 16 stig. Í fjórða leikhluta var björninn unninn og Grindvíkingar ógnuðu ekki sigri okkar manna. Lokastaðan var 101-80 og staðan 1-0 í einvíginu, en sem kunnugt er þurfa tveir leikir að vinnast til að komast í undanúrslitin.

Nick var frábær í kvöld, eins Gunni Einars, þeir voru báðir afar sprækir í vörn og sókn. Glover setti 30 stig og hefði getað skorað meira ef meira hefði verið leitað til hans, en þess var ekki nauðsyn. Boschee var sprækur hjá Grindavík, afar skotviss leikmaður, en einspilaði ef til vill fullmikið. Darryl Lewis sömuleiðis, en Grindvíkingar leika ekki mikið saman í sóknarleiknum, heldur byggja mikið á einstaklingsframtaki. Okkar menn náðu betur að láta boltann ganga, ekki síst í hraðupphlaupum sem mörg hver voru ansi flott.

En nú blasir við erfiður leikur á laugardaginn, því eins og við höfum marg oft mátt reyna, þá er ekki auðvelt að sækja sigur í Röstina. En með samstilltu átaki munum við að minnsta kosti eiga góða möguleika.

ÁFRAM KEFLAVÍK.