Ótrúleg úrslit í Frakklandi
Nú þegar Keflavík tekur þátt í Bikarkeppni Evrópu og etur kappi við frönsk og portúgölsk félög, þá hefur vefstjóri tekið upp þann sið að fylgjast aðeins með gangi mála í þessum löndum. Franska deildin er gríðarsterk og miklir peningar í spilunum, að jafnaði eru 2-6 þúsund manns á leik, misjafnt eftir liðum.
Flaggskip Frakkanna í dag er félagsliðið Pau-Orthes sem þykir með þeim bestu í Evrópu. Um síðustu helgi lék Pau-Orthes gegn neðsta liðinu sem heitir Limoges. Limoges er félag sem má muna sinn fífill fegurri, því fyrir nokkrum árum var þetta stórveldi í evrópskum bolta, en síðan hallaði undan fæti sökum fjárhagserfiðleika. Nú þykir liðið ekki lengur gott og vermir botnsætið í efstu deildinni í Frakklandi.
Samt sem áður gerði Limoges sér lítið fyrir og vann Pau-Orthes um helgina með 3ja stiga mun, 73-70. Þessi úrslit komu verulega á óvart, því Pau hafði ekki tapað leik í fyrstu 8 umferðunum og Limoges aðeins unnið einn. En þetta sýnir manni hve jöfn deildin er og sýnir manni líka - enn og aftur - að ekkert er öruggt í körfubolta.
Við þessi úrslit datt Pau niður í annað sætið, því Le Havre (Rúðuborg) er enn taplaust eftir 9 umferðir. Hyeres-Toulon, andstæðingar okkar í Evrópu, eru rétt fyrir neðan miðja deild með 4 sigra og 5 töp. Vichy, liðið sem Íslendingurinn Pavel Ermolinski, sonur Alexanders, leikur með, er á svipuðum slóðum með 4 sigra og 5 töp. Vichy tekur einnig þátt í Bikarkeppni Evrópu og leikur í A-riðli Vesturdeildar, en Keflavík og Hyeres-Toulon leika sem kunnugt er í B-riðli.