Fréttir

Körfubolti | 29. mars 2004

Ótrúlega stór sigur staðan 2-2

Keflvíkingar fóru létt með Grindvíkinga í dag , 124-76 í fjórða leik í undanúrslitunum, hafa þar með tryggt sér oddaleik í Grindavík á þriðjudagskvöld.

Keflvíkingar mættu áhveðnir til leiks allt frá fyrstu mínúndu .VÖRNIN var aðalsmerki Keflavíkur í dag. Arnar Freyr sló fyrsta taktinn í sókninni keyrði að körfunni í byrjun leiks setti þrist gerði nánast það sem hann vildi, Maggi tók svo undir skoraði 7 stig í fyrsta leikhluta Nick, Fannar, Derrick áttu skínadi byrjun.Staðan eftir fyrsta leikhluta 32-16. Vörnin hélt vel allan fyrri hálfleik með Nick fremstan í flokki, Derrick var sem skuggi á Darrel og allir með sitt á hreinu, strákarnir héldu áfram að bæta í forskotið með hreint frábærum köflum bæði í vörn og sókn:

Staðan í leikhléi 62-39 strákarnir komu einbeittir eftir hlé og héldu áfram sömu baráttu, voru allsráðandi um allan völl .Fannar og Derrick hreinlega áttu báða teigana.Keflvíkingar hafa átt það til að slaka á eftir góða byrjun og tapað niður öruggu forskoti, en það var ekki  í dag þeir bættu heldur betur í, Staðan eftri 3. leikhluta 97-57, 40 stiga munur Bæði lið hvíldu lykilmenn sína í 4. leikhluta Derrick og Nick komu ekkert við sögu síðusta leikhlutann en það kom ekkert niður á leik okkar manna .Lokatölur 124-76 FRÁBÆRT.

 

Keflvíkingar tóku alls 44 fráköst gegn 19,hittnin var góð 73,5% úr 2ja stiga skotum yfir 50% í 3ja.

Derrick var með 28 stig 13 fráköst. Nick 27 stig lék frábærlega bæði vörn og sókn sýndi styrk sinn var öruggur í skotunum utan af velli. Sverrir 15. stig átti skínandi leik Arnar 12 stig var frábær í upphafi leiks sýndi og sannaði að þar er frábær leikmaður á ferð.Fannar 12 stig var traustur og tryggur. Maggi 10.stig á að skjóta meira sömuleiðis Gunni Einars 6 stig. topp varnarleikur. Jonni 7.stig  gerði allt rétt í vörn og sókn afslappaður í sókninni þá fer allt oní. Halldór 7 stig kom sterkur inn. Gunni Stef. leik vel þann tíma sem hann fékk.  

Stórsigur staðreynd. Þá er bara að mæta í Grindavík á Þriðjudagskvöldið. Meira um það síðar.

 

ÁFRAM KEFLAVÍK