Ótrúlegir yfirburðir hjá 10. flokki kvenna
Íslandsmeistararnir í 10. flokki kvenna léku í fyrstu umferð Íslandsmótsins um síðastliðna helgi í Rimaskóla. Stúlkurnar, sem höfðu talsverða yfirburði á Íslandsmótinu í fyrra og urðu einnig bikarmeistarar, hafa æft vel í haust, léku við hvern sinn fingur og rúlluðu yfir hin liðin. Þess má geta að þrjár úr þessu liði hafa verið að leika með meistaraflokki í haust og staðið sig feykilega vel. Úrslitin urðu sem hér segir:
Keflavík - Njarðvík 74 - 19
Keflavík -Tindastóll 77 - 7
Keflavík - Fjölnir 77 - 15
Keflvík - Breiðablik 122 - 6
Alls komu 14 leikmenn við sögu og er stemmingin í hópnum góð fyrir veturinn. Þess ber þó að geta að talsvert var um meiðsli í liði UMFN og þar sem Haukar tefldu ekki fram liði í þessum flokki í fyrra hófu þær leik í c-riðli, en búast má við að þær verði skeinuhættar með Helenu Sverrisdóttur í fararbroddi. Liðið þarf því að halda áfram að æfa vel og vera tilbúnar í alvöruna eftir áramót. Þjálfari liðsins er Kristinn Óskarsson.
Stigaskorið:
María Ben 76
Bryndís 56
Bára 42
Guðrún Harpa 40
Linda 26
Ragnheiður 23
Hrönn 21
Pála 21
Kristín 14
Karen 12
Helga Jóns 9
Marsibil 4
Harpa 3