Fréttir

Körfubolti | 19. nóvember 2002

Ótrúlegt en satt! Alltaf einhverjir sem vilja eyðileggja.

Nú hafa verið settar upp nokkrar kannanir eða "spurningar" á heimasíðuna. Þessar spurningar hafa mælst vel fyrir og hefur þátttakan verið góð. Undanfarna daga hefur könnunin "besti stóri maðurinn" verið í gangi og hefur hún vakið nokkra umræðu.

En alltaf skulu vera til staðar fávitar sem leggja sig fram við að eyðileggja! Það er með ólíkindum. Mörg félög treysta sér t.d. ekki til að halda úti spjallsíðum vegna óþroskaðra einstaklinga sem kunna ekki með frelsið að fara.

Nú hefur einhver snillingurinn t.d. sett um 100 atkvæði á "einhver annar" á tíu mínútum. Til hvers? Hver veit. Skemmdarfýsnin er ekki auðskilin. Við gætum með mikilli fyrirhöfn gengið þannig frá hnútunum að erfitt sé að kjósa oftar en einu sinni, en auðveldast er þó einfaldlega að hætta að vera með spurningu á heimasíðunni.