Ótrúlegt en satt: Keflavík sigrar KR með 55 stiga mun, 92-37, í 1. deild kvenna
Sigurganga Keflavíkur hélt áfram í gærkvöldi þegar KR-stúlkur komu í heimsókn. Þessi tvö félög hafa borið af öðrum á undanförnum áratug í kvennaboltanum og viðureignir þeirra yfirleitt jafnar og skemmtilegar. En annað var uppi á tengingnum í gærkvöldi.
KR liðið er ekki jafn sterkt og í fyrra og þar að auki eru þær Hanna og Gréta forfallaðar um þessar mundir. Enginn átti þó von á því bursti sem leit dagsins ljós.
Ekki þarf í raun að skrifa mikið um leikinn, því yfirburðir Keflavíkur voru algerir og léku heimasæturnar KR sundur og saman í 40 mínútur. Breiddin nýttist vel og tæplega eitt hundrað stig voru skoruð sem er næsta fátítt í kvennadeildinni. Allar skoruðu og meðal jafningja voru Marín, Kristín og Erla iðnastar við kolann.
Á laugardaginn mætast þessi lið aftur í úrslitum Kjörískeppninnar í Smáranum og ef marka má þessi úrslit verður að telja okkar stúlkur sigurstranglegar. Á morgun leika stúlkurnar gegn Njarðvík í bikarkeppninni og má búast við meiri mótspyrnu þar enda hafa Njarðvíkurstúlkur verið að eflast upp á síðkastið, ekki síst eftir að nýji Kaninn bættist í hópinn, en sú skoraði 45 stig af 80 í sigri þeirra gegn ÍS í gærkvöldi.
Fyrir leikinn í gær voru heiðraðar fyrir timamótaleiki þær Kristín Blöndal (300), Erla Þorsteinsdóttir(200), Birna Valgarðsdóttir (100) og Svava Stefánsdóttir (100). Við birtum myndir af þeim á næstu dögum.