Fréttir

Körfubolti | 19. október 2003

Óvænt tap Keflavíkurstúlkna gegn sprækum KR-ingum, 79-69

Eftir góða byrjun Keflavíkur í haust og slæma byrjun KR áttu kannski margir von á því að Keflavík myndi landa þriðja sigrinum í röð á Íslandsmótinu í dag í vesturbænum. En svo var ekki. Keflavík hóf reyndar leikinn ágætlega og leiddi 21-25 eftir fyrsta leikhluta. En síðan stóð ekki steinn yfir steini mest allan leiktímann. Staðan í hálfleik var reyndar 33-38, en þegar um 13 mínútur voru eftir komst KR yfir 50-49 og eftir það hrundi leikur okkar kvenna. Lokatölur urðu 79-69 KR í vil.

Anna María léik einna best í slöku liði Keflavíkur, skorðai 17 stig og hirti 12 fráköst. Birna skoraði 16 stig en þurfti ansi margar tilraunir í þetta skiptið, alls hitti hún úr 5 skotum af 15. Illa gekk að ráða við Hildi Sigurðardóttir hjá KR sem fór á kostum og skoraði 30 stig (4 af 5 3ja), reif niður 16 frköst og átti 8 stoðsendingar.

Þetta tap er ágætis áminning fyrir okkar stúlkur um að veturinn verður ekki léttur, þrátt fyrir að margir hafi rætt um það. Um leið og einbeitingin og hugrekkið hverfur, þá tapast leikir. Varnarleikurinn var slakur og ekki náðu stúlkurnar tökum á þeim hraða leik sem þær vilja leika.

Keflavík lék án Erlu Þorsteinsdóttur sem er fjarverandi vegna kjálkameiðsla.

Hér má sjá tölur úr leiknum.