Óvænt úrslit í úrslitakeppninni
Það verður að teljast óvænt þegar lið númer 6 og 7 sigra lið númer 3 og 2 á útivelli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. En ekkert er öruggt í körfuboltaheiminum og það sást greinilega í gær og í dag þegar Snæfell og Njarðvík töpuðu fyrir KR og ÍR. Gömlu Reykjavíkurstórveldin stálu heimavallarréttinum af mun sigurstranglegri liðum og hafa nú góða möguleika á að "stelast" inn í undanúrslitin, þó vissulega sé allt opið enn.
Við spáum því reyndar að Snæfell og Njarðvík nái að sýna klærnar í útileikjunum. Snæfell er einfaldlega mun betur mannað lið en KR og ætti ekki að tapa fyrir þeim tvisvar í röð. KR hefur að vísu tvo afar sterka Kana, en samt trúir maður því varla að það dugi, þar sem Snæfellingar hafa mun fleiri góða leikmenn en KR. Reyndar er klassamunur á könunum, það verður að viðurkennast. En Hlynur, Siggi & Co ættu að ná að berja saman félaga sína til að forðast stórslys. Við spáum því að Snæfell vinni útileikinn á morgun og síðan oddaleikinn í Hólminum.
Njarðvíkingar eru með áberandi sterkari mannskap en ÍR, en samt verður að segjast að Njarðvík hefur enga liðsheild, eins og málin standa núna. ÍR-liðið hefur verið að slípast saman og þegar Eiríkur og félagar hitta vel að utan er liðið nokkuð beitt. Kjölfesta liðsins er barátta í fráköstum og þar er hvíti Kaninn þeirra, Grant, hreint ótrúlega seigur. Nýju Kanarnir hjá Njarðvík eru greinilega hörku spilarar, en vita kannski ekki ennþá til hvers er ætlast af þeim og hvert hlutverk þeirra er í liðinu. Athyglisvert var t.d. í kvöld að Frikki Stef sem verið hefur þeirra burðarás hvarf algerlega úr sóknarleiknum sem var nánast algerlega í höndunum á Snow, nýja leikstjórnandanum. Sá er svaka player með flottar sendingar, en vill greinilega hafa boltann í höndunum allan tímann. Þetta verður athyglisverð rimma, því ef Njarðvík nær ekki að stilla saman strengi, gætu þeir hæglega dottið út á sunnudaginn. Við gerum þó frekar ráð fyrir því að þeir snúi blaðinu við og neyti aflsmunar. Í raun ætti að duga þeim að spila vörn af sama krafti og þeir hafa gert hingað til í vetur og þá komast þeir líklega í gegnum ÍR. En hver veit?