Fréttir

Körfubolti | 16. desember 2003

Ovarense vann Keflavík með sex stigum, 99-93 í Bikarkeppni Evrópu í Ovar í Portúgal í kvöld

Keflavík hóf ekki að leika af krafti fyrr en í síðasta leikhluta í kvöld. Vörn heimamanna var grimm og Michael Wilson réð ríkjum undir körfunum. Í hálfleik var staðan 52-42 og eftir þrjá leikhluta var staðan orðin 74-58. Mestur varð munurinn 18 stig, 74-56.

En Arnar Freyr og Derrick drógu vagninn í síðasta leikhlutanum og líf færðist í Keflavíkurliðið. Smám saman minnkaði forskotið og varð minnst sex stig í lokin, 99-93. Það var mikilvægt hjá piltunum að ná muninum undir 14 stig, því ef liðin verða jöfn að stigum í riðlinum, þá stendur Keflavík betur að vígi í innbyrðis viðureignum með 8 stig í plús.

Derrick átti enn og aftur góðan leik, þó hann hafi ekki ráðið við Wilson í teignum. Derrick gerði 27 stig og hirti 10 fráköst. Nick var mjög slakur framan af, en herti sig í lokin og fór þá að skora, gerði alls 16 stig í leiknum, tók 2 fráköst. Arnar Freyr átti líklega besta leik ferilsins, gerði 16 stig og þar af 12 (held ég) í síðasta leikhluta. Frábært hjá Arnari, hann hefur komið þeim í opna skjöldu með hraða sínum. Gunni var solið í fyrri hálfleik en hvarf í þeim seinni, gerði 11 stig, Falur setti 3 þrista og skoraði 10, Jonni átti góðan sprett í fyrri hálfleik, gerði alls 11 stig. Maggi náði sér engan veginn á strik, skoraði aðeins 3 stig. Sverrir átti ekki sinn besta dag og fór út af með 5 villur. Halldór kom lítið við sögu.

Ovarense er gríðarsterkt lið og hefðum við þurft á toppleik að halda til að leggja þá að velli í Portúgal. En strákarnir sýndu þó góða takta og áttu góða spretti, einkum í lokin. En, tap er staðreynd en ekki var það stórt, það er huggun harmi gegn. Nú skiptir öllu máli að drengirnir læri af þessum leik og komi dýrvitlausir í næsta leik, því heimavallarrétturinn í 8 liða úrslitum er í húfi, og hann skiptir ÖLLU máli, svo einfalt er það.