Fréttir

Körfubolti | 3. nóvember 2003

Ovarense vann Madeira á útivelli

Í síðustu umferð portúgölsku úrvalsdeildarinnar mættust andstæðingar Keflavíkur í Evrópukeppninni, Madeira og Ovarense. Leikurinn var í Madeira, en samt tóks gestunum frá Ovarense að landa nokkuð öruggum sigri, 96-105. Með sigri þessum tryggði Ovarense sig í efsta sæti deildarinnar, en Madeira er enn í neðri hlutanum. Staðan í hálfleik var 47-62, gestunum í vil. Stigahæstir voru Spánverjinn Joffre Lleal með 31 stig og Morales með 17. Troðkóngurinn "Wild Thing" Wilson setti 14 og mar með flest fráköstin, alls 8.

Hér má sjá tölur úr leiknum.