Ovarense vann Toulon óvænt á útivelli, 74-80
Þau óvæntu tíðindi gerðust í kvöld að efsta lið portúgölsku deildarinnar, Ovarense, gerði sér lítið fyrir og sótti gull í greipar Frakkanna frá Hyeres-Toulon. Eins og menn muna vann Keflavík Ovarense á heimavelli 113-99, en tapaði gegn Toulon 107-91.
Flestir áttu von á sigri Toulon og allt stefndi í öruggan heimasigur því staðan í hálfleik var 51-36, Frökkunum í vil. En eitthvað fór úrskeiðis hjá heimamönnum í Espace3000 höllinni, því Portúgalarnir hreinlega völtuðu yfir þá í seinni háfleik, sem þeir unnu með 19 stigum, 44-23 (!). Herb Jones, sem lítið bar á í Keflavík, fór á kostum í seinni háfleik og setti m.a. 4 þrista, en hann gerði 19 stig í leiknum. Stigahæstur var þó Spánverjinn sterki, Morales, með 23 stig.
Með þessum úrslitum er Keflavík komið á topp riðilsins með tvo sigra, líkt og Ovarense.
Hér má sjá tölur úr viðureign Toulon og Ovarense.