Fréttir

Körfubolti | 17. desember 2003

Ovarensingar ánægðir með sigurinn á Kef

"Okkar áætlun gekk upp" sagði þjálfarinn Pepe Rodriguez í samtali við portúgalska fjölmiðla eftir leikinn í gær. "Við vissum að þeir eru mun veikari en við inn í teig og því þurftum við bara að stoppa skytturnar og það gekk upp". Netmiðlar segja að Keflavíkurliðið treysti algerlega á Bandaríkjamennina tvo, Allen og Bradford, en sé samt ágætlega spilandi og snöggt. Menn virtust sammála um að sigurinn hafi í raun aldrei verið í hættu. Bestu menn Portúgalana voru taldir Kanarnir Wilson og Tomsich, en þeir voru öflugastir í stigaskorun og fráköstum. Á heimasíðu félagsins segir að þó að menn séu ánægðir með sigurinn hafi ekki tekist að vinna með 14 stigum og því þurfi félagið að sigra Toulon í síðasta leiknum til að tryggja sér efsta sætið.

Þessi mynd birtist á einum netmiðlinum - Derrick og Landsbankinn í Portúgal!