Fréttir

Körfubolti | 18. desember 2003

Overense 77 - Toulon 80 : Við endum í þriðja sætinu, en aðeins hársbreidd frá því efsta!!

Það fór allt á versta veg í kvöld, því miður. Fyrst töpum við ótrúlegum leik í Madeira, en til að bæta gráu ofan á svart, þá tapar Ovarense sínum fyrsta heimaleik í kvöld gegn Toulon, 77-80. Lokastaðan er þá sú að Ovarense vann 4 leiki og fékk 10 stig, Toulon og Keflavík unnu 3 leiki og fengu 9 stig, en Madeira vann tvo leiki og fékk 8 stig. Toulon hefur betur í innbyrðis viðureignum gegn Keflavík og hreppir því 2. sætið í riðlinum og við endum í því þriðja.

Frammistaðan í riðlakeppninni var frábær og ef dómarinn hefði dæmt brot í lok leiksins þá hefðum við unnið riðilinn!!! Það segir okkur hve jöfn keppnin er og hve vel við stöndum okkur, lítið áhugamannalið í keppni á móti tröllvöxnum atvinnumönnum. Það er samt agalega svekkjandi að vera svona rosalega nálægt sigri og þurfa að horfa á eftir honum.

En hvað um það, keppnin er ekki búin, en nú verður framhaldið erfitt, en jafnframt skemmtilegt. Við leikum gegn franska stórliðinu Dijon sem er eitt af bestu liðum Frakklands. Gaman verður að heimsækja þá, því áhuginn þar er mikill og hafa verið yfir 3000 áhorfendur á öllum Evrópuleikjum þeirra til þessa. Verkefnið er erfitt, en ekki óyfirstíganlegt. Okkar markmið er að sjálfsögðu að komast í gegnum franska liðið, en til þess að það gerist verðum við að eiga amk tvo frábæra leiki.