Pælingar um Reykjanesmótið
Jæja þá er loksins körfuboltinn að fara að rúlla.
Það er merkilegt að á þessum tíma árs, fer maður að sjá fréttir af Reykjavíkurmótinu í stóru fjölmiðlunum. Sjaldan er minnst á Reykjanesmótið sem er að mínu mati sterkasta körfuboltamót sem haldið er hér á landi.
Í Reykjanesmótinu taka þátt fimm lið, öll úr úrvalsdeild. Í lok síðasta tímabils enduðu liðin í 1,2,3,5 og 10 sæti.
Í Reykjavíkurmótinu taka þátt sex lið, þrjú sem spiluðu í úrvalsdeildinni í fyrra og enduðu þau lið í 4,7 og 11 sæti. Hin liðin þrjú spiluðu í fyrstu deild og enduðu í 4,5, og 8 sæti þeirrar deildar.
Lesendur góðir, berið þetta endilega saman og reynið að sjá hvort mótið er líklega sterkara. Þessar pælingar mínar eru ekki settar fram til höfuðs Reykjavíkurmótinu, enda er það mót bara af hinu góða, og það er hið besta mál að fjallað sé um það í fjölmiðlum. Hitt er annað mál að ég vona að breyting verði nú á, og að sama krafti verði fjallað um Reykjanesmótið. Því meiri umfjöllun um körfubolta því betra. Kannski er sökin okkar, kannski getum við verið duglegri að senda úrslit á fjölmiðlana.
En nóg af svona væli. Nú er spennandi tímabil að fara í hönd. Óvænt mætum við til leiks með nýja þjálfara og er spennandi að sjá hvað þeir ná úr liðinu. Munu þeir verða eins sigursælir og Siggi. Nú er það okkar að styðja þá á komandi tímabili. Ég vill alls ekki vera að setja neina pressu á þá, en krafa mín er einungis að við vinnum þá titla sem í boði eru.
Bestu kveðjur, þangað til næst.
Tímavörðurinn
Ath. skoðanir tímavarðarins eru einungis hans og endurspegla á engan hátt skoðanir körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.