Fréttir

Körfubolti | 26. júní 2004

Páll Axel tryggði Íslandi sigur á síðustu sekúndu

Páll Axel skoraði þriggja stiga körfu á síðustu sekúndu leiksins og tryggði Íslandi þar með 77-76 sigur í þriðja vináttuleiknum gegn Belgum. Leikurinn hafði verið í járnum mest allan tímann, líkt og hinir tveir leikirnar, en í þetta skiptið var endirinn íslenskur. Páll átt prýðilegan leik, sem og Jakob Sigurðssson og Magnús Gunnarsson, þrátt fyrir að þristarnir hafi ekki dottið hjá honum. En maður leiksins var þó Hlynur Bæringsson sem átti stórleik, skoraði 23 stig og hirti 14 fráköst. Hér má sjá tölur úr leiknum.

Í gær var svipuð harka uppi á teningnum en endirinn var ekki jafn skemmtilegur. Íslendinga skorti kjart til að taka af skarið í lokin og því rann sigurinn okkur úr greipum. Helgi Magnússon átti prýðilegan leik, sem og Hlynur Bæringsson og Fannar Ólafsson. Hér má sjá tölur úr þeim leik.

Alls náði íslenska landsliðið því einum sigri úr þremur jöfnum leikjum. Hvorugt liðið var fullskipað og hjá báðum vantaði helstu stigaskorana. Engu að síður náðist í dag fyrsti sigur Íslands á Belgíu síðan 1987 og verður það að teljast gott. Þrír síðustu leikir á undan þessum enduðu allir með stórtöpum, á bilinu 25 - 70 stig. Vonandi gefur þessi sigur góð fyrirheit, því Belgía er A-þjóð en við B-þjóð sem ætlar sér að komast í hóp A-þjóða á nokkrum árum.