Fréttir

Karfa: Karlar | 7. september 2010

Pétur Guðmundsson nýr aðstoðarþjálfari Mfl. karla

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Pétur Rúðrik Guðmundsson hafa komist að samkomulagi að Pétur muni gegna stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla í vetur. Hann mun því standa við hlið Guðjóns Skúlasonar í vetur, en saman stefna þeir á að fleyta Keflavíkurliðinu langt á komandi tímabili.

Pétur er fæddur 1972 og hefur viðamikla reynslu af þjálfarastörfum frá Grindavík. Hann hefur þjálfað meistaraflokk kvenna í Grindavík, yngri flokka, verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og kvenna síðastliðin 15 ár. Ásamt þessu var hann spilandi leikmaður hjá meistaraflokki karla í Grindavík í 15 ár. Það er ljóst að Pétur mun koma með ferskar hugmyndir inn í Keflavíkurliðið og telur stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að þetta muni efla Keflavíkurliðið fyrir komandi átök á tímabilinu. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur vill bjóða Pétur velkominn til starfa hjá félaginu.


Pétur Guðmundsson (mynd: visir.is)