Porsche keyrði yfir Njarðvíkurstúlkur - Stutt viðtal við þá stuttu
Keflavíkurstúlkur unnu nágranna sína úr Njarðvík í Ljónagryjunni í gær 64-73 í 5. umferð Domino´s deildar kvenna. Eftir að hafa lent undir 9-0 tók Porsche Landry sóknarleik liðsins á herðar sér á sama tíma og skipt var um varnarafbrigði og farið í svæðisvörn. Ekki leið á löngu þar til Keflavíkurstúlkur voru komnar í forystu sem þær svo létu aldrei af hendi.
Það má með sannig segja að hin smávaxna Porsche Landry hafi keyrt yfir Njarðvíkurliðið í þessum leik en hún skoraði 34 stig ásamt því að taka 6 fráköst. Sara Rún Hinriksdóttir kom næst með 15 stig og þá skoraði systir hennar Bríet Sif 10 stig, en þau komu öll á stuttum kafla í síðari hálfleik. Eftir leikinn eru Keflavíkurstúlkur taplausar á toppnum með 10 stig.
Porsche Landry var að vonum sátt með sigurinn en aðspurð hvað það hefði verið sem skóp sigurinn kvað hún vörnina hafa verið góða; "Með því að láta þær ekki fá eins frí þriggjastiga skot og þær vildu náðum við að stoppa þær"
Nú hafi þið unnið fimm leiki í röð, getur þetta haldið svona áfram?
Já, ég held við getum haldið þessu áfram ef við höldum áfram að spila fast, spila saman og ef við skiljum allt sem við eigum eftir á vellinum.
Hvernig hefur þér þótt íslenska deildin hingað til?
Hún hefur verið frábær og talsvert öðruvísi en ég bjóst við. Ég t.d. vissi ekki að hér væri að finna jafn margar góðar þriggjastigaskyttur eins og þær íslensku
Hvernig lýst þér á Keflavíkurliðið og er það eitthvað sérstakt sem þú saknar frá heimahögunum ef frá eru talið það augljósa, s.s. eins og fjölskylda og vinir?
Ég elska Keflavíkurliðið mitt. Þar hef ég verið í kringum margar af bestu manneskjum sem ég hef hitt um ævina og dvölin hingað til hefur verið frábær. Ég sakna einna helst matarins (soul food) að heiman, hann er frábær.
Þú hefur byrjað tímabilið mjög vel - mega aðdáendurnir eiga vona á þér svona sterkri áfram eða mega þeir búast jafnvel við meiru?
Aðdáendur liðsins hafa verið frábærir. Ég hef reynt að gera mitt besta og gefa liðinu það sem það þarf. Ég held ég tali fyrir hönd alls liðsins þegar ég segi að við ætlum okkur að verða betri með hverjum leik. Þannig já, aðdáendur liðsins mega eiga von á einhverju meira frá okkur - tímabilið er bara ný hafið.
Eitthvað að lokum?
Já, ég vill biðla til aðdáenda liðsins að koma og styðja við bakið á kvennaliði Keflavíkur. Fyllum húsin af aðdáendum Keflavíkur - Áfram Kef!!!
Mynd: Porsche Landry í leiknum gegn Njarðvík. Myndin er fengin af vef Víkurfrétta - www.vf.is en þar má finna flotta umfjöllun um leikinn en Víkurfréttir sinna körfuboltanum á Suðurnesjum virkilega vel á vef sínum þar sem gjarnan má finna ítarlega umfjöllun og myndir.