Fréttir

Körfubolti | 25. nóvember 2003

Portúgalarnir frá Madeira komu á mánudag, en töskurnar þeirra komu í dag

Eins og stundum vill verða þegar skipta þarf um flugvél, þá týndist farangurinn á leiðinni. 16 af 25 töskum þeirra Madeiringa komu ekki til Keflavíkur á mánudaginn. Vegna töskuleysis fór æfingaæprógrammið aðeins úr skorðum, en í staðinn fóru þeir í skoðunarferð til Reykjavíkur í gær. Þeir fengu töskurnar sínar í dag og gátu æft. Einnig mun þeir taka stutta æfingu í hádeginu á morgun. Þeir gista á Hótel Keflavík og fer vel um þá. Þeir höfðu ekki séð snjó í langan tíma og leist ágætlega á.

Nokkur meiðsli eru í herbúðum Madeiringa líkt og hjá Keflavík. Aðalskyttan þeira, Spánverjinn Chemo Marcos (sem er með 60% 3ja stiga nýtingu í deildinni) er meiddur á læri og ekki ljóst hvort hann taki þátt. Auk þess er Pedro Nuno meiddur og mun ekki leika. Annars eru menn klárir og eflaust mun Jorge Henriques byggja leik liðs síns i kringum Bandaríkjamanninn Nate Johnston.