Portúgalarnir komu í gær
Liðsmenn Ovarense komu til Keflavíkur um miðjan dag í gær. Fulltrúar Keflavíkur voru mættir á flugvöllinn og tóku á móti þeim. Þeir héldu beint á Hótel Keflavík, þar sem þeir gista, og síðan var æfing hjá þeim kl. 18.30. Þeim leist vel á aðstæður og voru hrifnir af snjónum og hreina loftinu. Nokkrir leikmanna brugðu sér í lyftingar eftir æfinguna.
Að lokinni æfingu héldu þeir í kvöldmat á Soho þar sem Örn Garðarsson töfraði fram ljúffengan rétt handa gestunum.
Í dag ætla þeir að hvíla sig frá körfubolta fram að leik. Þeir halda til höfuðborgarinnar í smá skoðunarferð í fyrramálið en verða komnir til Keflavíkur aftur skömmu eftir hádegi. Þá leggja þeir sig á hótelinu, fá sér að borða og gera sig klára í leikinn sem þeir ætla auðvitað að vinna! Portúgalarnir eru atvinnumenn í faginu og haga sér sem slíkir.