Fréttir

Körfubolti | 27. nóvember 2003

Portúgalarnir kvarta undan hörku

Á netsíðu portúgalsks körfubolta má lesa (á portúgölsku, að sjálfsögðu) um leik Keflavíkur og Madeira frá í gærkvöldi. Þar kemur fram að einn helsti leikmaður þeirra, Fernandes, hafi verið sleginn óþyrmilega í andlitið með þeim afleiðingum að hann hafi þurft að yfirgefa völlinn. Talað er um hörku í leik Keflvíkinga og einnig vilja menn meina að lögleg karfa hafi verið tekin af þeim á afdrífaríku augnabliki þegar skref voru dæmd á Ken Leeks undir lokin.

Rætt er um að Keflavík hafi ekki náð sér á strik í 3ja stiga skotum, en að 2ja stiga nýtingin hafi verið afar góð. Liðinu er hrósað fyrir gott úthald og góðan hraða og að hafa tekið fleiri fráköst með góðri baráttu.

Annars voru stjórnendur CAB Madeira afar svekktir í gær að leik loknum og var greinilegt á þeim að þeir ætluðu að fljúga heim með sigur í farteskinu. Meiðsli hafa hrjáð þá að undanförnu og gengið hefur ekki verið sem best og vonbrigðin því enn meiri með tapið í Keflavík. En þeir verða erfiðir heim að sækja, svo mikið er víst, ekki síst ef stórskyttan Chema Marcos verður búinn að jafna sig á meiðslunum.