Reims burstaði CAB Madeira í Portugal
Leik CAB Madeira og Reims var að ljúka með auðveldum sigri Reims. Það verður að segjast að þessi úrslit eru frekar óvænt. Reims voru yfir allann leikinn en juku forskotið strax í byrjun seinni hálfleik. Reims vann 3 leikhluta 33 - 11 og fóru leikmenn Reims á kostum. Leikurinn endaði 73-95 og 22 stiga sigur neðsta liðsins í riðlinum staðreind. Boissie með 22 stig, Fletcher 19 fyrir Reims. Stigahæstir hjá Madeira voru Fernandes með 20 og Bobby Joe með 16. Keflavík mætir svo CAB Madeira a fimmtudaginn og með sigri náum 2 sæti í riðlinum. Ef við töpum fyrir þeim með minni mun en 13 stigum eigum við samt 2 sætið. Með öðrum orðum verður Madeira að vinna okkur með meira en 13 stigum.