Reshea á heimleið
Því miður fyrir unnendur og leikmenn mfl. kvenna þarf Reshea Bristol að halda heim á leið til Ameríku. Foreldrar hennar lentu í bílslysi á dögunum og hennar er þörf á heimaslóðum. Þó er ekki um lífshættuleg meiðsli að ræða, en aðstæður eru þær að hún þarf að hverfa á braut.
Reshea hefur leikið glimrandi vel með Keflavík og verður mikil eftirsjá að henni. Einnig hefur hún verið ánægð í Keflavík og er mjög leið yfir þessu, en það verður ekki á allt kosið. Við þökkum Resheu fyrir hennar frábæra framlag til körfunnar í Kef og óskum henni alls hins besta og foreldrum hennar góðs bata.
Reshea mun fara heim á miðvikudag og mun því ná að leika einn leik enn, gegn Haukum á þriðjudagskvöldið. Við hvetjum stuðningsmenn til að mæta og sjá þessa snjöllu körfuboltakonu í síðasta skiptið, á þessari leiktíð, a.m.k.
Þegar hefur verið hafin leit að nýjum leikmanni í hennar stað.