Reshea Bristol á leið til Keflavíkur á ný?
Sögusagnir hafa farið á stað að Reshea Bristol sé á leið aftur til Keflavíkur. Reshea er mjög góður leikmaður og var mjög mikilvæg liðinu áður hún hvarf á braut. Keflavíkurliðið hefur hikstað aðeins eftir að hún fór til síns heima og auðvitað yrði það mikil fengur að fá hana aftur til liðsins. Ekkert er þó frágengið í þessu máli en sem komið er, þó vissulega sé þetta góður möguleiki í stöðunni. Heimasíðan mun flytja ykkur fréttir af gang mála um leið og mál komast á hreint.